Life's just one damned thing after another!
20.02.2008 02:41:43 / salla

Life's just one damned thing after another!

Life's just one damned thing after another!
is´n it?

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.07.2007 00:02:35 / salla

Mánudagur..

Jæja missz komin með síðu á minnsirkus... endilega smellið ykkur þanngað og skoðið ykkur um;)

http://salbjorg.minnsirkus.is

er með smá blogg þar líka

 

annars er bara allt fín að frétta hjá mér... búin að vera svolítið slæm í fótunum núna og fór þess vegna ekki í vinnuna... sé til í fyrramálið hvernig ég verð hvort ég geti farið. Er alveg að verða geðveik á þessu sko..

 

en jæja verð að hverfa..

later


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.06.2007 21:05:23 / salla

Gleðilega hátíð:)

Jæja... þá er ég mætt en einu sinni til að blogga. Fyrsta vikan í sumarstarfinu hjá ítr er lokið og var bara mjög fín, bendir til að sumarið verði fínt:)

Á laugardaginn fórum við solla á laugardalsvöllinn með Önnu Elísu að hvetja íslenska kvennalandsliðið gegn frökkum. Leikurinn fór 1-0 fyrir okar konum, til hamingju með það:D. Þetta var bara mjög gaman verð ég að segja en þó þótti mér svolítið súrt að sjá hversu lítin áhuga íslenska þjóðinn sýndi leiknum. Vonandi mætta fleiri á fimmtudagsleikinn..

 Skrapp aðeins út með Guðrúnu og Sollu á Gaukinn á laugardagskvöldið, var að vonats eftir að sjá einhvern sætan sjóliða en fór eitthvað á mis við þá:S Fannst frekar lítið af fólki þarna þannig að við fórum bara fljótlega um 3 leytið, með smá stoppi á bæjarins..

Í morgun þegar við vöknuðum fórum við solla að þrífa bílinn hjá stóra bróður og sóttum síðan Önnu og skruppum í bæinn.. Röltum dálítið og fórum svo á Deco að borða, mjög notarlegt8)

Síðan bætust vinkonur Önnu í hópinn þær Aldís og Ína, meira eða minna skrítnar.. Við enduðum svo bara á því að skilja þær etir og forum heim. Gunna frænka mætti svo aðeins seina tilbúin að lita á okkur hausana.. mjög sátt með útkomuna..

nú sit ég bara ein að horfa á eddie izzard uppistand..:lol:  algjör snilld..

 

jæja heyri í ykkur later 


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.05.2007 22:19:38 / salla

Komið i marg blessuð og sæl...

Maður er búin að vera eitthvað frekar latur undanfarið... en nú er komin tími a blogg;)


Í gær byrjaði sumarskólinn hjá mér, tek 2 áfanga núna..spænsku 303 og sálfræði 303. Vona bara að ég nái spænskunni núna..er svo svakalega léleg í henni en ætla nú að vera dugleg að einbeita mér af því að læta heima. Annars er bara vinnan að fara í gang og það er komið á hreint að ég verð að vinna í rauða húsinu í sumar en ekki í texas eins og stóð til.

Annars er allt bara svona eins og venjulega...bara búin að vera heima með eitthverja ælupest:S en held að ég fari í vinnuna á morgun...

 

Heyy eitt sem ég var að pæla... um daginn var ég að snúast með Eðvarði bróður og það kom mér á óvart hversu margar stelpur meika sig og hafa ekki fyrir því að líta í spegil á meðan eða áður en þær fara út. Ég get svo svarið það ég sá svo margar stelpur með alveg svakalegar grímur..sumar óhuggnandi:( Hvað er málið eiginlega? Ómáluð eða ekki fer ég ekki út án þess að kíkja í spegil, jafnvel þó að það sé ekki nema rétt í augnablik.. sumar af þessum stelpum voru eins og þær hefðu verið að spila mýrarbolta.

En ég fór að hugsa.. afhverju segir engin neitt við þessar stelpur?? Ef ég væri með vinkonu minni og hún liti út eins og að hún væri drullug.. þá myndi ég sko segja henni að líta í spegil og athuga með fjandans grímuna.. er það ekki bara sjálfsagt? Ekki myndi ég láta vinkonuna labba út um allan bæ lítandi út eins og hálviti. og ekki mundi ég vilja að vinkona mín gerði slíkt við mig. En sem betur fer eiga vinkonur mínar allar spegla og eru komnar í góða "meik-áburði" :haha: þannig að ég þarf svo sem ekkert að pæla mikið í þessu þegar þær eiga í hlut.

Spurningin er...

er það ókurteysi að ókunnugri manneskju að vinda sér upp að einstakling sem er á rölti og segja " Fyrirgefðu ónæðið en meik vinnan hjá þér er svolítið fucked up og þú ættir að bregða þér inn á næsta salerni og kíkja í spegil" ?? Þessu velt ég fyrir mér...

er þetta dónalegt? eða bara kurteysi? Flestir hika ekki við að segja við aðra.. "heyy þú ert með eitthvað hér" (og benda á viðkomandi stað.. Það telst ekki vera dónalegt..

 

annars er ég bara að pæla...:$

 

bæó... salla 


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 11:02:25 / salla

þeir sem vilja svara...

1. Hefuru slegið einhvern í andlitið?

2. Hve gamall/gömul ertu

3. Frátekin/n eða einhleyp(ur) ?

4. Borðaru með höndunum eða notaru áhöld?

5. Dreymir þig á nóttunni?

6. Hefuru séð lík?

7. Hefuru óskað þess að einhver deyji?

8. Ertu að fíla Gogga Bush? Nú þegar stöðluðu spurningarnar eru búnar, byrjum á góða stöffinu.

9. Hvaða speki hefuru á lífinu? Tekuru því of alvarlega?

10. Ef þú mættir gera hvað sem er með mér án þess að neinn fengi að vita af því. Hvað myndi það vera?

11. Treystiru lögreglunni?

12. Hlustaru á kántrí?

13. Hvað er þín besta minning sem þú átt með mér?

14. Ef þú gætir breytt einhverju í fari þínu, hvað myndi það vera?

15. Myndiru deita mig?

16. Í hverju sefuru?

17. Hefuru pissað í sundlaug á meðan þú ert ennþá að synda?

18. Myndiru fela sönnunargögn fyrir mig ?

19. Ef ég myndi deyja á morgun. Hvað myndir ÞÚ gera með mér í dag?

20. Hvað finnst þér best um mig?

21. Er ég hot?

22. Hvað er uppáháldsliturinn þinn?

23. Ef þú gætir vakið eina mannveru til lífsins frá dauðum, hver myndi það vera?

24. Segðu mér eina heimskulega / tilgangslausa staðreynd um þig.

25. Muntu endurpósta þessu svo ég geti svarað þér?

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 16:54:19 / salla

í dag

Halló halló, hvað er að ske í litlu álfuni okkar?

Var nú ekki að fylgjast með Júróvision í gær að miklu viti en jú svana með öðru auganu. Ég held að þessi fornkeppn sé að drepa keppnina. Þetta er orðið svoldið mikið steikt núna þegar sumar þjóðir taka sig bara saman og ákveða hvaða lönd eiga að komast áfram:S

Ég get ekki séð að þetta gangi upp svona, er á þeirri skoðun að við ættum að halda tvær keppnir.. eina fyrir okkur sem erum hlutlaus og svo eina fyrir svindlarana sem kjósa bara lagið sem er frá þjóðini hinu megin við landamærin. Burt séð frá því hvort það sé hræðilegt eða ekki.

En annars er ég bara búin að vera í prófum.. missti næstum að náttúrufræði prófinu i dag:S en náði á síðustu mínútu sem betur fer:)

Er að fara elda fyrir hana sollu mína.. það þarf víst að gefa henni að borða.

Svo ætluðu Ágúst og Sigga að kíkja á mig á eftir.. Og á morgun þegar við solla erum búnar að snúast og sendast förum við á Selfoss.. eða alla vega ég. Solla verður eftir í Hveragerði hjá Helgu Völu og Önnu Stínu.. svo komum við aftur á sunnudaginn

jæja nú er ég þotin;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.05.2007 22:17:33 / salla

LIVERPOOL Í ÚRSLITALEIK MEISTARADEILDAR EVRÓPU!!

YOU'LL NEVER WALK ALONE:D

HVað sagði ég?

Var að koma heim af players og hvílík stemning sem myndaðist á staðnum, langt síðan ég hef upplifað annað eins æðislegt:D Spennan var að drepa viðstadda og að lokum borgaði erfiðið sig fyrir LIVERPOOL menn og þeir er á leið í úrslitaleikinn, og eiga það vel skilið. Leikmennirnir spiluðu frábærlega og ég egt ekki sagt annað en að þeir hefðu verðið félaginu til sóma.

Verð nú samt aðeins að taka Chelsea fyrir.. Er nú ekki þekkt fyrir að hafa Chelsea menn á hornum mér en nú tók tappann úr. Á tímabili í leiknum létu chelsea menn sig falla eins og strá í hvert skipti sem eitthevr LIVERPOOL maður kom við þá, eins og svo oft áður var DRogba sjálfum sér til skammar með því að standa inn á miðjum velli vælandi út af snertingum sem ekki einu sinni leikskólabörn myndu kippa sér upp við!:whut:

Ef ég fengi að ráða þá ætti að dressa menn eins og Drogba upp í sjóstakk, setja um borð í línubát og sigla með þá út á rúmsjó þar sem þeir geta leikið sér að því að fiska eins og þeir vilja! Svona fjandans leikaraskapur á ekki heima inn á fótboltavelli og hvað þá í meistaradeild!

En aftur að gleðinni þá verð ég að segja að Reina var að mínu mati maður leiksins og Agger á hrós skilið fyrir þetta glæsilega marks sem hann skilaði af sér:D Annars fannst mér allir leikmennirnir spila vel og þykir jafn væntum þá alla.

Kóngurinn, Fowler kom inn í framlengingunni og það var ekkert nema gleði, hefði viljað sjá hann setja eitt inn en það verður bara að gerast næst..

 Nú er bara að bíða og sjá hverjir keppa á móti okkur í úrslitaleiknum..:S:)

 

Poolarinn

When you walk through a storm,
Hold your head up high,
And don't be afraid of the dark.
At the end of a storm,
There's a golden sky,
And the sweet silver song of a lark.
Walk on through the wind, Walk on through the rain,
Though your dreams be tossed and blown..

Walk on, walk on, with hope in your heart,
And you'll never walk alone.......
You'll never walk alone.

Walk on, walk on, with hope in your heart,
And you'll never walk alone.......
You'll never walk alone.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 09:12:45 / salla

Liverpool vs chelsea

Fór fyrr úr kvöldskólanum til að ná leiknum á Players í gær.. Birna var mætt um 5 til að taka frá borð fyrir okkut og við komum rétt fyrir 7.. Ef ég á að segja eins o er fannst mér þessi leikur ekki vera neitt spes.. Bæði liðin eru þekkt fyrir að leika betri leiki.

Liverpool leikmenn voru engan vegin samstilltir og vörnin var dálítið mikið úti að skíta.. Aftur á móti voru menn eins og Drogba að gera mig brjálaða, hvílíkur vælukjói, gaur með netta snertingafælni og ætti betur heima í leiklistarnámi en inn á fótboltavelli!

Markið hjá Joe Cole var ágætt en Reina hefði getað varið þetta, hefur líklega verið of snöggur að skutla sér afstað. Þessi tegurn marka finnst mér vera algeng að LFC fá á sig, er þá kki að tala um misreikningin hjá Reina heldur gapið í vörninni..Þar sem varnarmenn LFC koma hlaupandi á eftir sóknarmönnum andstæðinganna. Þetta verður að breytast.

Það kom mér svakalega á óvart hversu snöggir Chelsea menn voru upp völlinn en Liverpool leikmennirnir eru vel færir til að halda í við þá.

Ég er hundfúl yfir að Liverpool hafi tapað þessari rimmu en ég trúi því að leikmennirnir mæti en ákveðnari og sterkari í seinni leikinn þann 1. mai, við töpum ekki á heimavelli.. Við förum í úrslitaleikinn, segjiði þetta með mér.. VIÐ FÖRUM Í ÚRSLITALEIKINN!! ÁFRAM LIVERPOOL!!

jæja annars er þetta næst síðasti skóladagurinn.. Þarf að reyna klára verkefni í fjölmiðlafræði..

 

nenni ekki að pikka meira í bili..

 

salla poolari 


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 10:10:35 / salla

Crazy helgi...

Vá þessi helgi var furðuleg.. langt síðan ég var svona svakalega drukkin maður:lol:

Á föstudaginn skrapp ég með Sollu og Edda á Mr. Bean myndina og fór svo að hitta Tótu í keiluhöllinni á meðan óli kallinn hennar og bróðir hennar fóru í bíó. Þegar þeir komu aftur fórum við aðeins rúntinn og svo var ég bara komin heim um 2 leytið.

Á laugardaginn skutlaði ég Sollu í vinnuna og fór svo bara heim að læra.. Sótti svo Sollu í vinnuna og við fórum með Edda bróður á búlluna og fengum okkur burger:) Rúntuðum á nokkrar bílasölur og síðan fór ég til Ástu. Deni var að halda upp á afmælið sitt og ég feékk að sitja í með Ástu niðr í bæ.. Það var svaka fjör. Appelsínu bollan vandist eftir nokkur glös og var bara ágæt..;)

Tóta kom og sótti mig og ég fór með henni og fylgdarliðinu hennar á hressó, þaðan á Glaumbar og svo aftur á hressó.. Þar hitti ég Ástu, Kristjönu og Öddu og varð eftir hjá þeim þegar tóta fór.

Endaði með Öddu á gamla Ara í ögri þar sem hún hitti eitthverja vini sína og Deni;) Og ég fékk brunasár á nefið eftir sígarettu.. Man ekki alveg hvað svo fyrren við komum út og ég, Adda og eitthverjir 2 gaura tókum taxa eitthvert. Minnið er svolítið glopótt en mann að við vorum að horfa á just friends og drekka viðbjóðslegan landa.. Svo sofnaði ég í sófanum yfir myndinni og læddist síðan út um morgunin þegar solla koma og sótti mig..

sem sagt svaka fjör:D8)

 

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 10:49:11 / salla

Helgin 14-15 apríl

Jæja á laugardaginn skruppum við solla í smá verslunarferð og fórum síðan til Diddu frænku að hitta ömmu..Þaðann fórum við með henni í heimsókn til Maudu frænku sem bauð okkur upp á sodastream:D Fórum svo í smáran með ömmu vegna þess að hún vildi kíkja í hagkaup svo bauð gamla góða amma okkur á kaffihús. Þar hittum við einn frænda okkar frá Ólafsvík og fjölskylduna hans..Gaman af því;)

Eftir að við skutluðum ömmu heim til systur sinnar fórum við í skeifuna en Sollu fannst besta leiðin vera að taka stórann hring inn í kópavog til að komast þanngað... systir hennar ömmu býr sko í laugardalnum8|:lol: Um kvöldið komu strákarnir maggi, valdi, haukur, elías og sölvi í smá heimsókn..spiluðum buzz og vorum bara hress:D Þeir fór um 4 leytið þegar við vorum búin að horfa á eitthvern þátt á netinu um gaur með alveg svakalegan heila..stór merkilegt verð ég að segja:!:

Solla tók svo leigubíl í vinnunna þar sem að af eitthverjum "óþekktum" ástæðum hafði "sprungið" á öllum 4 dekkjunum undir bílnum hjá mér eitthvarn tíman um nóttina..:S En það er nú svona þegar fólk er með mismunandi há greindarvísitölu. En það komu þarna 2 laganaverðir til að taka skýrslu og svo er bara spurning hversu langt maður gengur með þetta:$

Þeir voru bara hálf hissa á því að fullorðið fólk hagi sér svona en ég útskýrði fyrir þeim að þó að menn teldust til hóps þeirra fullorðnu þýddi það nú ekki að þeir ættu ekki heima við krakkaborðið:D

Í gær kíkti maggi svo í smá heimsókn og rétt á eftir honum komu Raggý og Anna með Hróa litla en hann fékk 1.verðlaun í hundasýningarkeppni eða hvað sem þetta kallast nú:D  Til hamingju með það!! þetta litla greyj er nú að venjast nokkuð vel..Hrói er fínn þegar hann er ekki upp á há c-inu..

Svo var það bara big papas pizza og dexter á skjánum:)

heyrumst 


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 10:24:35 / salla

Dimmisjónin;)

Á föstudaginn var dimmisjón hjá nemendum fb þannig að við hittumst milli kl 8 -9 í undirheimum, klæddum okkur upp í "cat with the hat" búningana okkar og byrjuðum að sturta í okkur áfenginu og koma okkur í stemningu:D:D

Ferðinni var svo heitið í kaffi á kennarastofunni þar sem aðstoðarskólameistari fór með klúra ræðu yfir hópnum og bauð svo upp á pönnsur og fleira brauðmeti.. Kall greyjið var vist að fara á taugum af hræðslu við að kettirnir væru búnir að hella of stíft í sig fyrstu tímana..en það var nu ekki raunin þar sem að allir voru bara kátir;)

Fórum svo aað trufla tíma og stóð ég fyrir fjöldasöng í spænskutíma hjá Fernando..eina stuð lagið sem ég kunni var "Fíllinn hún Nellý sér flýtti af stað..." dálítið vandræðanlegt og dó fljótt út.. my bad:lol: Næst á dagskrá varað hópa liðinu upp í strætó og koma því niðrí keiluhöll. Þar var fyrsta stoppið á barnum þar sem Anna crazy bauð okkur sigga í drykk og svo var tekinn einn leikur við skvísurnar af snyrtifræðibrautinni.. Þær tóku okkur í bakaríið:$ Við vorum líka drukkinn og þau voru með eina ólétta sem hélt þeirra liði uppi sko..bara svo að það komi fram að þetta var ekki alveg sanngjörn lið;)

Síðan tróðu allir pizzu í andlitið á sér og ég ásamt mörgum tókum bara strætó aftur upp í fb og sat þar með nokkrum einstaklingum..Síðan skutluðu 2 nice stelpur mér heim og ég tók að græja mig fyrir kvöldið..

Fórum með strætó klukkan hálf 7 upp í skálan í Hveradölum (held að hann heiti það) og fengum æðislegan mat og gnúsi kennari hélt svaka skemmtilega ræðu:lol: Góður Magnús!

Svo fórum við heim aftur um 12 leytið og solla sótti mig..var orðin hálf veik aftur þannig að ég ákvað að fara bara heim að sofa..var orðin þreytt eftir daginn.. Alltaf hægt að djamma seinna8)

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.04.2007 10:38:13 / salla

Heil og sæl..

jæja þá er maður farin og komin aftur.. Skrapp vestur í nokkra daga og kíkti á Aldrei fór ég suður, það var bara nokkuð fínt.

Nú liggur maður bara heima með kvef og vessen sem er ekki cool þar sem ég er að fara dimmitera á morgun. Ákvað að vera heima í dag og taka því rólega..reyna ná þessu úr mér.

 nei vá maður ég meika þetta ekki.. blogga seinna

heyrumst 


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.03.2007 09:15:38 / salla

29 marzo

Góðan og blessaðan daginn..

Jæja í gær ætlaði ég að vera geðveikt dugleg að skrúfa saman rúmið sem ég náði að redda mér en þá kom í ljós að skrúfurnar voru of stuttar og pössuðu þess vegna ekki:S Þannig að ég þarf að fara kaupa nýjar þegar ég er búin að sækja Sollu í vinnuna.. þurfum hvort sem er að fara og kaupa fjarstýringu á sjónvarpið okkar...

Ég var annars að enda við að skríða úr munlegu spænsku prófi sem gekk bara ágætlega held ég.. svo fer ég í próf í upplýsingatækni eftir hádegi og þarf líka að vera með power point show í uppeldisfræði í tímanum þar á eftir8| Eins og mér finnst það nú skemmtilegt eð þannig ...

Annars var dagurinn fínn í gær, gott veður og alles bara8) Eftir skóla skrapp ég á kaffihús með kunningja mínum og það var bara mjög kósý og skemmtilegt;) Sótti síðan sollu sem var að niðurlútum komin eftir að hafa tekið að sér að skúra leikskólan.. hahaha skil hana enda eru skúringar ekki það skemmtilegasta í heiminum..

jæja best að fara skoða eitthvað sem meikar sens í stað þess að posta eitthvað sem gerir það ekki..

later


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.03.2007 19:48:14 / salla

Helgin..

Helgin er bara búin að vera nokkuð fín.. Á föstudaginn skruppum við í innfluttningsparty hja Deni og vinkonu hans.. svakalega gaman;)

Á laugardaginn skruppum við systurnar í smá verslunarleiðangur  og keyptum nýjan heimasíma, rounder og svo fórum við til ömmu og afa í hafnafirðinum í smá heimsókn.. Um kvöldið kom Elli og sótti okkur og var ferðinni heitið heim til Dillu vinkonu hennar sollu. Þar var fólkið að gír sig upp í djammstuðið.. Röltum niðrí bæ um 2 leytið og beint á dubliners.. það var svaka stuð þar:) Hitti Atla sem var að vinna með mér í Arnarbakkanum í gamla daga og hann var hress eins og venjulega.. Þegar það kom að því að því að fara heim marseraði hópurinn á nonna bita til að fá sér nætursnarl..Svo tókum við bara taxa heim og skriðumí kojur um 6-7 leytið í morgun..

Annars er maður bara búin að vera reyna læra eitthvað og svona.. Valgeir kom í heimsók á áðan og svo komu Heimir afi og Svala amma með rúm sem  þau ætla að lána mér svo ég þurfi ekki að spoona endalaust með sollu systir:D :haha:

 nú þarf maður bara að reyna halda áfram að læra :(


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.03.2007 10:02:19 / salla

jebb..

Þeir sem hafa lesið bloggið hjá Sollu vita alveg hvernig þessi blessaða árshátíð fór..;) Ég er alltaf jafn heppin eða hitt þó.. Alla vega náði ég þessum rauðvíns blett úr pilsinu en bolurinn er allt annað mál..:S Það kennir mér að vera ekki í hvítu..

Annars var síðaasta vika ágæt.. á fimmtudaginn skrapp ég í Borgarnes með hóp úr fjölmiðlafræði..vorum með félagsmiðstöðina hjá borgnesingum í láni og strákarnir og kennararnir voru duglegr að spila borðtennis.. Ég spilaði einn leik en var víst ekkert mjög góð í þesu sporti þannig að ég lét mér nægja að horfa á strákana spila og hlæja að þeim:)

Tók við tal við eitthverja gaura í ráðhúsinu og það var ekki nóg meða ð ég skildi ekki spurningarnar sem ég samdi heldur hefðu svör þessara manna eins verið á tælensku.. Hvílíkt bull..

Annars var þetta viða cosy fyrior utan veðrið..á tímabili kom haglél sem var álíka stórt og golfkúlur.. voða skemmtó;)

Annars eru eitthverjar pælingar hjá Sollu og Dillu að skella sér í bæinn um helgina.. Vona bara að ég verði orðin góð af þessu kvefi þá..8|

Annars er bara lítið að frétta.. hlakka geðveikt til að komast heim eftir 2 vikur.. þarf samt líklega að læra eitthvað á meðan ég er heima.. Foreldrarnir verða í burtu þannig að þetta gæti verið mjög afslappandi.. Vona samt að það verði almenninlegur snjór svo að við getum fraið á sleðann, það er alltaf allur snjór farinn þegar við komum..:whut:

 

jæja best að fara gera eitthvað uppbyggilegt..


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Dagsetning
10. febrúar 2012
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti